Seyðfirsk tímaskekkja
Seyðfirðingar eru, í fullri alvöru að því virðist, að skoða það að taka upp sumartíma á Seyðisfirði.
Þetta er stórvitlaus hugmynd á svo marga vegu og af svo mörgum ástæðum að það hálfa væri nóg.
Fyrir það fyrsta þá er Íslands þegar á sumartíma, eða með "flýtta klukku", allt árið um kring. M.v. hnattstöðu þá ætti Ísland að vera á GMT-1, en reyndar ætti vestasti hluti Vestfjarða að vera á GMT-2. Hinsvegar er Ísland á GMT allt árið um kring sem í raun sumarklukkan ef hér væri sumartími. Að taka upp sumartíma, þ.e. að flýta klukkunni yfir á GMT+1, er í raun að taka upp tvöfaldan sumartíma og hið náttúrlega hádegi er þá um kl. 14 síðdegis (nánar tiltekið kl. 14:14 að meðaltali).
Í öðru lagi mun sumartími skapa vandræði í tölvukerfum og tölvustýrðum tækjum þegar þarf að breyta tímanum.
Í þriðja lagi mun skapast almennur ruglingur tvisvar á ári manna á milli þegar breytt er um tíma.
Ég fjallaði mjög ítarlega um þessi atriði og mörg önnur í grein í Morgunblaðinu 17. nóvember 2000 þegar hugmyndir um sumartíma voru til umræðu. Fremur en að endurtaka mig hér þá vísa ég á greinina. Öll rökin eiga enn við enda hugmyndin jafnvitlaus þá og nú.
Fjölmargar aðrar greinar má finna í Morgunblaðinu frá þessum tíma og enginn mælti þessari hugmynd bót. Helstar vil ég benda á þessar:
- Sumartími á Íslandi? (Erlendur S. Þorsteinsson, tölvunar- og stærðfræðingur)
- Úr takt við tímann (Gunnlaugur Björnsson, stjarneðlisfræðingur)
- Frumvarp til laga um tímareikning (Marteinn Sverrisson, verkfræðingur)
- Tvöfaldur sumartími? (Skúli Skúlason, verslunarmaður)
- Opið bréf til flutningsmanna frumvarps um tímareikninga á Íslandi (Júlíus K. Björnsson, sálfræðingur)
- Í hvaða heimi birtu og samskipta búa þeir? (Ragnar Ingimarsson, verkfræðingur)
Mín ráðlegging til Seyðfirðinga er að fara fyrr á fætur, byrja vinnudaginn fyrr, fara fyrr heim og þá endist sólin lengur á kvöldin. Drattist á fætur!